Fréttir

Keflavík - Tindastóll á sunnudag kl. 15:00
Knattspyrna | 9. maí 2015

Keflavík - Tindastóll á sunnudag kl. 15:00

Kvennaliðið okkar leikur fyrsta leik sumarsins á sunnudaginn en þá tekur liðið á móti Tindastóli í 1. umferð Borgunarbikarsins.  Við vekjum athygli á því að leikurinn verður í Reykjaneshöllinni og hefst kl. 15:00.  Dómari leiksins verður Samir Mesetovic og aðstoðardómarar þeir Gunnar Oddur Hafliðason og Snorri Mir.

Eins og undanfarin ár teflum við fram ungu liði í kvennaboltanum sem er nær eingöngu skipað heimstúlkum.  Stelpurnar hafa reyndar fengið bandarískan markvörð til liðs við sig.  Liðið stóð sig prýðilega í sínum riðli í Lengjubikarnum og eru tilbúnar í átök sumarsins.  Það er Gunnlaugur Kárason sem þjálfar Keflavíkurliðið í ár.

Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta á völlinn og hvetja okkar stelpur til dáða.