Keflavík - Valur á fimmtudag kl. 17:15
Keflavík og Valur leika í 20. umferð Pepsi-deildarinnar fimmtudaginn 16. september. Leikurinn fer fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík og hefst kl. 17:15. Liðin sigla bæði lygnan sjó um miðja deild; Keflavík er í 7.-8. sæti með 24 stig en Valur er í 6. sæti með 28 stig. Dómari leiksins verður hinn fílhrauti Einar Örn Daníelsson, aðstoðardómarar þeir Smári Stefánsson og Viðar Helgason og eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Georg Lárusson.
Keflavík og Valur hafa leikið 86 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958 þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli. Þess má geta að Sigurður Albertsson skoraði mark Keflavíkur í þeim leik. Keflavík hefur unnið 28 leikjanna, Valur hefur hins vegar sigrað 32 sinnum en 26 leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 128-131, Val í hag. Stærsti sigur Vals í leikjum liðanna var 7-1 sigur á Hlíðarenda árið 1987 og það er jafnframt mesti markaleikur sem liðin hafa háð ásamt 4-4 jafntefli í Keflavík árið 1999 og 5-3 sigri Keflavíkur árið 2008. Stærstu sigrar Keflavíkur hafa verið með fjögurra marka mun, tveir 4-0 sigrar árið 1973 og 5-1 sigur árið 1964. Átta leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Val; Guðmundur Steinarsson og Haukur Ingi Guðnason hafa skorað fjögur mörk, Guðjón Árni Antoníusson þrjú, Hörður Sveinsson tvö og þeir Brynjar Örn Guðmundsson, Jóhann B. Guðmundsson, Magnús Þorsteinsson og Hólmar Örn Rúnarsson hafa skorað eitt mark hver.
Liðin hafa mæst sex sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1970 en síðast árið 1997. Keflavíkur hefur unnið 4 leiki en Valur 2; markatalan þar er 13-8 fyrir Keflavík. Jóhann B. Guðmundsson hefur skorað þrjú bikarmörk gegn Val en þau komu öll í 5-1 sigri í framlengdum leik árið 1997. Leikurinn var í 8 liða úrslitum en Keflavík varð einmitt bikarmeistari þetta ár.
Liðin mættust fyrr í sumar í 9. umferð Pepsi-deildarinnar og þá vann Keflavík 2-0 sigur á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda. Guðjón Árni Antoníusson og Brynjar Örn Guðmundsson gerðu mörkin í þeim leik.
Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir Keflavík og Val í gegnum árin eins og Guðmundur Viðar Mete, Jakob Már Jónharðsson, Adolf Sveinsson, Bjarni Sigurðsson, Sigurjón Kristjánsson og Hafsteinn Guðmundsson. Þá hafa þessi lið ekki síður haft sömu þjálfara en Willum Þór þjálfaði auðvitað Val áður en hann kom til Keflavíkur. Áður höfðu Óli B. Jónsson, Guðbjörn Jónsson, Ian Ross og Ingi Björn Albertsson þjálfað bæði lið.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og Vals í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2009 |
Keflavík - Valur |
3-0 | Hörður Sveinsson 2 Guðjón Árni Antoníusson | ||
2008 |
Keflavík - Valur |
5-3 | Guðmundur Steinarsson 2 Hans Mathiesen Símun Samuelsen Guðjón Árni Antoníusson | ||
2007 |
Keflavík - Valur |
1-3 | Símun Samuelsen | ||
2006 |
Keflavík - Valur |
1-1 | Guðmundur Steinarsson | ||
2005 |
Keflavík - Valur |
1-5 | Stefán Örn Arnarson | ||
2001 |
Keflavík - Valur |
1-1 | Magnús Þorsteinsson | ||
1999 |
Keflavík - Valur |
4-4 | Karl Finnbogason Kristján Brooks 2 Marco Tanasic | ||
1998 |
Keflavík - Valur |
2-2 | Snorri Már Jónsson Þórarinn Kristjánsson | ||
1997 |
Keflavík - Valur |
2-0 | Haukur Ingi Guðnason 2 | ||
1996 |
Keflavík - Valur |
2-1 | Sjálfsmark Haukur Ingi Guðnason |