Fréttir

Knattspyrna | 29. júní 2011

Keflavík - Valur á fimmtudag kl. 19:15

Keflavík og Valur leika í 7. umferð Pepsi-deildarinnar fimmtudaginn 30. júní en þessum leik var frestað fyrr í mánuðinum.  Leikurinn fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 19:15.  Fyrir leikinn er Keflavík er í 8.-9. sæti með 8 stig en Valur er í 3. sæti með 15 stig.  Dómari leiksins verður hinn velþekkti Kristinn Jakobsson, aðstoðardómarar þeir Smári Stefánsson og Birkir Sigurðarson og eftirlitsmaður KSÍ er Eyjólfur Ólafsson.

Keflavík og Valur hafa leikið 87 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958 þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli.  Þess má geta að Sigurður Albertsson skoraði mark Keflavíkur í þeim leik.  Keflavík hefur unnið 29 leikjanna, Valur hefur hins vegar sigrað 32 sinnum en 26 leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 131-132, Val í hag.  Stærsti sigur Vals í leikjum liðanna var 7-1 sigur á Hlíðarenda árið 1987 og það er jafnframt mesti markaleikur sem liðin hafa háð ásamt 4-4 jafntefli í Keflavík árið 1999 og 5-3 sigri Keflavíkur árið 2008.  Stærstu sigrar Keflavíkur hafa verið með fjögurra marka mun, tveir 4-0 sigrar árið 1973 og 5-1 sigur árið 1964.  Sjö leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Val; Guðmundur Steinarsson og Haukur Ingi Guðnason hafa skorað fjögur mörk, Guðjón Árni Antoníusson þrjú og þeir Andri Steinn Birgisson, Brynjar Örn Guðmundsson, Jóhann B. Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson hafa skorað eitt mark hver.

Liðin hafa mæst sex sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1970 en síðast árið 1997.  Keflavíkur hefur unnið 4 leiki en Valur 2; markatalan þar er 13-8 fyrir Keflavík.  Jóhann B. Guðmundsson hefur skorað þrjú bikarmörk gegn Val en þau komu öll í 5-1 sigri í framlengdum leik árið 1997.  Leikurinn var í 8 liða úrslitum en Keflavík varð einmitt bikarmeistari þetta ár.

Síðastliðið sumar mættust liðin tvisvar í Pepsi-deildinni og vann Keflavík báða leikinar.  Fyrri leikurinn á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda fór 2-0 þar sem Guðjón Árni Antoníusson og Brynjar Örn Guðmundsson gerðu mörkin.  Seinni leiknum í Keflavík lauk með 3-1 sigri en Hörður Sveinsson gerði tvö markanna og Andri Steinn Birgisson eitt en Martin Pedersen skoraði fyrir Val.

Keflavík hefur gengið vel á heimavelli gegn Val undanfarin ár, unnið síðustu þrjá leiki og aðeins tapað tveimur af síðustu fimmtán heimaleikjum gegn Val í efstu deild.

Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir Keflavík og Val í gegnum árin eins og Guðmundur Viðar Mete, Jakob Már Jónharðsson, Adolf Sveinsson, Bjarni Sigurðsson, Sigurjón Kristjánsson og Hafsteinn Guðmundsson.  Fyrir þetta tímabil fór svo Hörður Sveinsson frá okkur til Vals.  Þá hafa þessi lið ekki síður haft sömu þjálfara en Willum Þór þjálfaði auðvitað Val áður en hann kom til Keflavíkur og þjálfari Valsmanna nú er auðvitað Kristján Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari okkar.  Áður höfðu Óli B. Jónsson, Guðbjörn Jónsson, Ian Ross og Ingi Björn Albertsson þjálfað bæði lið.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og Vals í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:

2010

Keflavík - Valur

3-1 Hörður Sveinsson 2
Andri Steinn Birgisson
2009

Keflavík - Valur

3-0 Hörður Sveinsson 2
Guðjón Árni Antoníusson
2008

Keflavík - Valur

5-3 Guðmundur Steinarsson 2
Hans Mathiesen
Símun Samuelsen
Guðjón Árni Antoníusson
2007

Keflavík - Valur

1-3 Símun Samuelsen
2006

Keflavík - Valur

1-1 Guðmundur Steinarsson
2005

Keflavík - Valur

1-5 Stefán Örn Arnarson
     2001    

Keflavík - Valur

1-1 Magnús Þorsteinsson
1999

Keflavík - Valur

4-4 Karl Finnbogason
Kristján Brooks 2
Marco Tanasic
1998

Keflavík - Valur

2-2 Snorri Már Jónsson
Þórarinn Kristjánsson
1997

Keflavík - Valur

2-0 Haukur Ingi Guðnason 2