Keflavík - Valur á laugardag kl. 16:15
Á laugardag leika Keflavík og Valur í 1. umferð Landsbankadeildarinnar og er óhætt að segja að sumarið byrji með látum þegar sjálfir Íslandsmeistararnir koma í heimsókn. Leikurinn fer fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík og hefst kl. 16:15. Dómari leiksins verður enginn annar en Kristinn Jakobsson en aðstoðardómarar þeir Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson. Varadómari er Örvar Sær Gíslason en eftirlitsmaður verður Eyjólfur Ólafsson.
Keflavík og Valur hafa leikið 81 leik í efstu deild, þann fyrsta árið 1958 þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli. Þess má geta að Sigurður Albertsson skoraði mark Keflavíkur í þeim leik. Keflavík hefur unnið 25 leikjanna, Valur hefur hins vegar sigrað 32 sinni en 24 leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 115-127, Val í hag. Stærsti sigur Vals í leikjum liðanna var 7-1 sigur á Hlíðarenda árið 1987 og það er jafnframt mesti markaleikur sem liðin hafa háð ásamt 4-4 jafntefli í Keflavík árið 1999. Stærstu sigrar Keflavíkur hafa verið með fjögurra marka mun, tveir 4-0 sigrar árið 1973 og 5-1 sigur árið 1964. Fjórir leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hefur skorað gegn Val; Þórarinn Kristjánsson hefur skorað fjögur mörk, Guðmundur Steinarsson tvö og þeir Símun Samuelsen og Magnús Þorsteinsson hafa skorað eitt mark hver.
Liðin hafa mæst sex sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1970 en síðast árið 1997. Keflavíkur hefur unnið 4 leiki en Valur 2; markatalan þar er 13-8 fyrir Keflavík.
Liðin mættust að sjálfsögðu tvívegis í Landsbankadeildinni á síðasta sumri. Fyrri leikurinn fór fram á Laugardalsvelli og lauk með 2-2 jafntefli. Keflavík komst í 2-0 með mörkum frá Þórarni Kristjánssyni og Baldri Sigurðssyni en Hafþór Ægir Vilhjálmsson og Daníel Hjaltason jöfnuðu undir lokin. Leikurinn var nokkuð umdeildur og okkar menn voru ekki alveg sáttir við frammistöðu dómarans. Valsmenn sigruðu svo nokkuð örugglega í síðari leiknum í Keflavík þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Þar byrjuðu okkar menn á því að setja sjálfsmark áður en Guðmundur Benediktsson og Baldur Bett skoruðu fyrir gestina. Símun Samuelsen minnkaði muninn en þá höfðu þrír leikmenn Keflavíkur farið meiddir af velli og liðsstjórinn fengið rautt spjald.
Keflavík hefur ekki gengið sem best gegn Val á heimavelli undanfarin og reyndar hefur árangurinn gegn Valsmönnum á útivelli verið mun betri. Keflavík hefur ekki náð að vinna í síðustu sex deildarleikjum á heimavelli gegn Val og þarf að fara ellefu ár aftur í tímann til að finna heimasigur gegn Hlíðarendapiltunum. Liðin hafa reyndar verið nokkuð dugleg við að gera jafntefli, það frægasta er án efa 4-4 jafnteflið árið 1999 þar sem Karl Finnbogason skoraði mark og Arnór Guðjohnsen var rekinn af velli fyrir að kalla línuvörð hálfvita!
Úrslit í leikjum Keflavíkur og Vals í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2007 |
Keflavík - Valur |
1-3 | Símun Samuelsen | ||
2006 |
Keflavík - Valur |
1-1 | Guðmundur Steinarsson | ||
2005 |
Keflavík - Valur |
1-5 | Stefán Örn Arnarson | ||
2001 |
Keflavík - Valur |
1-1 | Magnús Þorsteinsson | ||
1999 |
Keflavík - Valur |
4-4 | Karl Finnbogason Kristján Brooks 2 Marco Tanasic | ||
1998 |
Keflavík - Valur |
2-2 | Snorri Már Jónsson Þórarinn Kristjánsson | ||
1997 |
Keflavík - Valur |
2-0 | Haukur Ingi Guðnason 2 | ||
1996 |
Keflavík - Valur |
2-1 | Sjálfsmark Haukur Ingi Guðnason | ||
1995 |
Keflavík - Valur |
1-1 | Marco Tanasic | ||
1994 |
Keflavík - Valur |
3-3 | Ragnar Margeirsson 2 Óli Þór Magnúson |