Fréttir

Keflavík - Valur á mánudag kl. 18:00
Knattspyrna | 26. ágúst 2012

Keflavík - Valur á mánudag kl. 18:00

Mánudaginn 27. ágúst koma koma Valsmernn í heimsókn í 17. umferð Pepsi-deildarinnar.  Leikurinn fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og það er rétt að benda á að flautað verður til leiks kl. 18:00.  Fyrir leikinn eru liðin á svipuðum slóðum í deildinni; Keflavík í 5.-6. sæti deildarinnar með 24 stig en Valur er í 9. sæti með 21 stig.  Það verður fróðlegt að sjá liðsuppstillingu Keflavíkur í þessum leik en þeir Frans Elvarsson, Denis Selimovic, Einar Orri Einarsson verða allir í leikbanni og þar sem Arnór Ingvi Traustason hefur nýlega yfirgefið okkar herbúðir verður enginn þeirra sem hafa venjulega leikið á miðsvæðinu með í þessum leik.  Dómari leiksins verður Þóroddur Hjaltalín Jr., aðstoðardómarar þeir Birkir Sigurðarson og Haukur Erlingsson og eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Ingi Guðjónsson.

Keflavík og Valur hafa leikið 90 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958 þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli.  Þess má geta að Sigurður Albertsson skoraði mark Keflavíkur í þeim leik.  Keflavík hefur unnið 30 leikjanna, Valur hefur hins vegar sigrað 34 sinnum en 26 leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 132-138, Val í hag.  Stærsti sigur Vals í leikjum liðanna var 7-1 sigur á Hlíðarenda árið 1987 og það er jafnframt mesti markaleikur sem liðin hafa háð ásamt 4-4 jafntefli í Keflavík árið 1999 og 5-3 sigri Keflavíkur árið 2008.  Stærstu sigrar Keflavíkur hafa verið með fjögurra marka mun, tveir 4-0 sigrar árið 1973 og 5-1 sigur árið 1964.  Fjórir leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Val; Guðmundur Steinarsson og Hörður Sveinsson hafa skorað fjögur mörk og þeir Jóhann Birnir Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson eitt mark hvor.

Liðin hafa mæst sex sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1970 en síðast árið 1997.  Keflavíkur hefur unnið 4 leiki en Valur 2; markatalan þar er 13-8 fyrir Keflavík.  Jóhann B. Guðmundsson hefur skorað þrjú bikarmörk gegn Val en þau komu öll í 5-1 sigri í framlengdum leik árið 1997.  Leikurinn var í 8 liða úrslitum en Keflavík varð einmitt bikarmeistari þetta ár.

Valsmenn unnu fyrri leik liðanna í sumar á heimavelli sínum að Hlíðarenda.  Lokatölur urðu 4-0 þar sem Kolbeinn Kárason skoraði tívegis og Matthías Guðmundsson og Kristinn Freyr Sigurðsson eitt mark hvor.

Nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir Keflavík og Val í gegnum árin eins og Hörður Sveinsson, Guðmundur Viðar Mete, Jakob Már Jónharðsson, Adolf Sveinsson, Bjarni Sigurðsson, Sigurjón Kristjánsson og Hafsteinn Guðmundsson.  Þá hafa þessi lið ekki síður haft sömu þjálfara en þjálfari Valsmanna nú er Kristján Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari okkar.  Áður höfðu Óli B. Jónsson, Guðbjörn Jónsson, Ian Ross, Ingi Björn Albertsson og Willum Þór Þórsson þjálfað bæði lið.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og Vals á heimavelli okkar hafa orðið þessi undanfarin ár:

2011 Keflavík - Valur 0-2  
2010 Keflavík - Valur 3-1 Hörður Sveinsson 2
Andri Steinn Birgisson
2009 Keflavík - Valur 3-0 Hörður Sveinsson 2
Guðjón Árni Antoníusson
2008 Keflavík - Valur 5-3 Guðmundur Steinarsson 2
Hans Mathiesen
Símun Samuelsen
Guðjón Árni Antoníusson
2007 Keflavík - Valur 1-3 Símun Samuelsen
2006 Keflavík - Valur 1-1 Guðmundur Steinarsson
2005 Keflavík - Valur 1-5 Stefán Örn Arnarson
2001 Keflavík - Valur 1-1 Magnús Þorsteinsson
1999 Keflavík - Valur 4-4 Kristján Brooks 2
Karl Finnbogason
Marco Tanasic
1998 Keflavík - Valur 2-2 Snorri Már Jónsson
Þórarinn Kristjánsson