Fréttir

Knattspyrna | 10. júlí 2011

Keflavík - Víkingur á mánudag kl. 19:15

Keflavík og Víkingur mætast í 10. umferð Pepsi-deildarinnar mánudaginn 11. júlí.  Leikurinn fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 19:15.  Bæði liðin eru  í neðri hluta deildarinnar og þurfa því á stigunum að halda.  Fyrir leikinn er Keflavík í 8. sæti með 11 stig en Víkingar eru í 10.-11. sæti með 7 stig.  Dómari leiksins verður Erlendur Eiríksson, aðstoðardómarar þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Leiknir Ágústsson og eftirlitsmaður KSÍ er Guðmundur Sigurðsson.

Keflavík og Víkingur hafa leikið 40 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1970.  Keflavík hefur haft betur í viðureignum liðanna í gegnum árin og unnið 20 leiki.  Víkingar hafa sigrað 13 sinnum en sjö sinnum hefur orðið jafntefli.  Markatalan er 63-49, Keflavík í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur er 4-0 sigur árið 1979 en stærsti sigur Víkings var 3-0 sigur á Laugardalsvelli árið 1984.  Guðmundur Steinarsson hefur skorað tvö mörk gegn Víkingum í efstu deild.  Keflavík hefur ekki tapað í síðustu tíu heimaleikjum gegn Víkingum og reyndar unnið átta þeirra.  Það þarf að fara aftur til ársins 1983 til að finna Víkingssigur í Keflavík.

Liðin hafa leikið þrisvar í bikarkeppninni, árin 1975, 1981 og 2006.  Keflavík hefur unnið alla leikina og er með markatöluna 10-1.  Guðmundur Steinarsson hefur skorað tvö bikarmörk gegn Víkingum.

Liðin léku síðast í efstu deild árið 2007.  Keflavík vann fyrri leikinn á Víkingsvelli í umdeildum leik.  Þórarinn Kristjánsson kom Keflavík yfir en Sinisa Kekic jafnaði úr umdeildri vítaspyrnu.  Kekic var rekinn af velli í kjölfarið og á lokamínútunni tryggði Guðmundur Steinarsson Keflavík sigurinn með marki úr annarri umdeildri vítaspyrnu.  Seinni leikurinn í Keflavík var heldur rólegri og lauk með markalausu jafntefli.

Það hefur verið lítill samgangur milli Keflavíkur og Víkings í gegnum árin en Keflvíkingurinn Magnús Þormar stendur nú í marki Víkinga og áður höfðu Helgi Björgvinsson og Sigurgeir Kristjánsson leikið með báðum liðum.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og Víkings á heimavelli okkar hafa orðið þessi undanfarin ár:

2007

Keflavík - Víkingur

0-0
2006

Keflavík - Víkingur

2-1 Hólmar Örn Rúnarsson
Stefán Örn Arnarson
     2004    

Keflavík - Víkingur

1-0 Þórarinn Kristjánsson
2003 (B-deild)

Keflavík - Víkingur

0-0
1999

Keflavík - Víkingur

3-2 Þórarinn Kristjánsson
Ragnar Steinarsson
Eysteinn Hauksson
1993

Keflavík - Víkingur

3-2 Jóhann B. Magnússon
Gunnar Oddsson
Kjartan Einarsson
1989

Keflavík - Víkingur

3-2 Freyr Sverrisson
Óli Þór Magnússon 2
1988

Keflavík - Víkingur

3-1 Grétar Einarsson
Ragnar Margeirsson
Óli Þór Magnússon
1985

Keflavík - Víkingur

3-1 Ragnar Margeirsson 2
Sigurjón Kristjánsson
1984

Keflavík - Víkingur

3-1 Ragnar Margeirsson
Magnús Garðarsson
Sigurður Björgvinsson