Keflavík - Víkingur á miðvikudag kl. 19:15
Þá er komið að sannkölluðum stórleik þegar Víkingar koma í heimsókn í undanúrslitum Borgunarbikarsins. Leikurinn verður miðvikudaginn 30. júlí á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 19:15. Okkar menn hafa áður unnið Augnablik, Hamar og Fram í keppninni en Víkingar unnu Grindavík í 32 liða úrslitunum, Fylki í 16 liða úrslitum og tryggðu sér svo sæti í undanúrslitunum með sigri á BÍ/Bolungarvík í 8 liða úrslitum. Dómari leiksins verður Þorvaldur Árnason, aðstoðardómarar þeir Birkir Sigurðarson og Frosti Viðar Gunnarsson en eftirlitsmaður KSÍ er Eyjólfur Ólafsson. Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Keflavík og Víkingur hafa þrisvar áður mæst í bikarkeppninni og hefur Keflavík unnið alla leikina. Liðin mættust fyrst í 8 liða úrslitum árið 1975 og þá vann Keflavík 2-0. Næst léku liðin í 16 liða úrslitum árið 1981 og þá vann Keflavík 4-1 sigur. Liðin léku svo í undanúrslitum keppninnar árið 2006 og sá leikur vannst 4-0.
Úrslit leikja Keflavíkur og Víkings í bikarkeppni KSÍ hafa orðið þessi:
2006 | Undanúrslit | Víkingur - Keflavík | 0-4 |
Guðmundur Steinarsson 2 Jónas Guðni Sævarsson Þórarinn Kristjánsson |
1981 | 16 liða úrslit | Keflavík - Víkingur | 4-1 |
Magnús Garðarsson 3 Óli Þór Magnússon |
1975 | 8 liða úrslit | Víkingur - Keflavík | 0-2 |
Steinar Jóhannsson Einar Gunnarsson |
Leikurinn
Að þessu sinni rifjum við upp síðasta bikarleik Keflavíkur og Fram en hann var einmitt í undanúrslitum keppninnar árið 2006. Leikurinn fór fram á Laugardalsvelli og lauk með öruggum sigri Keflavíkur sem vann svo KR í úrslitaleiknum. Að neðan má sjá umfjöllun Morgunblaðsins um leikinn.
Smellið á fréttina fyrir neðan til að sjá stærri útgáfu.