Keflavík - Völsungur á laugardag kl. 16:30
Laugardaginn 8. júní leika Keflavík og Völsungur í 3. umferð 1. deildar kvenna. Leikurinn verður á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 16:30. Okkar stúlkur töpuðu fyrsta leik sínum í deildinni en þeim næsta var frestað. Völsungur hefur leikið tvo leiki, unnið annan en tapað hinum. Dómari leiksins verður Svanlaugur Þorsteinsson og aðstoðardómarar hans þeir Sigurður Smári Hansson og Njáll Trausti Gíslason.
Keflavík og Völsungur hafa áður leikið fjóra leiki í B-deildinni, fyrst árið 2010 og aftur í fyrra. Keflavík hefur unnið tvo leiki, Völsungur einn og einum leik lauk með jafntefli. Markatalan í leikjunum er 10-3 fyrir Keflavík.
Við hvetjum stuðningsmenn Keflavíkur til að mæta á leikinn og hvetja okkar bráðunga lið.