Keflavík - Völsungur á miðvikudag kl. 18:00
Á miðvikudaginn er komið að næsta leik okkar í 1. deild kvenna en þá koma Völsungar í heimsókn. Leikurinn verður á Iðavöllum og við bendum á að hann hefst kl. 18:00. Fyrir leikinn er Keflavík í 4. sæti riðilsins með 14 stig en Völsungur er í 7. sætinu með 10 stig. Dómar leiksins verður Ægir Magnússon og aðstoðardómarar hans þeir Eðvarð Atli Bjarnason og Júlíus Friðriksson.
Liðin mættust fyrr í sumar í deildinni og gerðu þá markalaust jafntefli á heimavelli Húsvíkinga. Áður höfðu Keflavík og Völsungur leikið tvo leiki á Íslandsmótinu en það var í B-deildinni árið 2010. Keflavík vann þá báða leikina, fyrri leikinn á heimavelli 2-0 og seinni leikinn á Húsavík 7-0.