Fréttir

Keflavík á Spáni
Knattspyrna | 10. apríl 2013

Keflavík á Spáni

Lokaundirbúningur fyrir Íslandsmótið er að komast í fullan gang og í gær héldu okkar menn til Spánar.  Þar mun liðið dveljast í viku í Oliva Nova við æfingar.  Á staðnum er glæsileg aðstaða til æfinga og keppni og ljóst að það mun fara vel um okkar menn.

Liðið kom á hótelið seinnipartinn í gær og skellti sér strax á létta æfingu.  Arnór Ingvi, Magnús Sverrir, Ray Anthony og Einar Orri tóku því rólega á æfingunni.  Hópurinn horfði svo á meistaradeildina og svo fóru menn snemma í rúmið.

Við komum með frekari fréttir frá Spáni næstu daga.