Keflavík áfram í bikarnum
Keflvíkingar sigruðu KS/Leiftur 1-0 í 32 liða úrslitum bikarkeppni KSÍ sl. fimmtudagskvöld og verða því í pottinum þegar dregið verður í 16 liða úrslitin á mánudaginn. Töluverður vindur var þegar leikurinn hófst en annars voru aðstæður fínar. Keflavík gerði fimm breytingar á liði sínu frá síðasta leik en þeir Einar Orri, Brynjar Örn, Ómar Karl, Andri Steinn og Magnús Þórir komu inn og stóðu sig allir virkilega vel.
Keflavík byrjaði vel og Ómar Karl átti gott skot og svo kom skot frá Andra Steini sem Ohran varði vel. Andri Steinn var svo aftur á ferðinni og nú með skot í stöngina. Haraldur Freyr átti skalla framhjá og einnig Guðmundur sem bjargað var á línu. KS/Leiftur ógnaði marki okkar ekki mikið en voru sterkir á miðjunni. Staðan í hálfleik 0-0 og ótrúlegt að Keflavík væri ekki búið að skora.
Haraldur Freyr meiddist lítillega og Alen Sutej tók stöðu hans í seinni hálfleik. Keflavík hélt áfram að sækja og ekki leið á löngu þar til Hólmar Örn átti hörkuskot í stöngina. Á 63. mínútu skoraði svo Magnús Þórir Matthíasson gott mark eftir góða fyrirgjöf frá Guðjóni Árna. Hólmar Örn var svo í fínu færi en skaut yfir. Í lokin varði svo Árni Freyr snilldarlega frá Þórði Birgissyni og þar munaði fingurgómunum að gestirnir jöfnuðu leikinn. Árni Freyr stóð sig vel og var öruggur í öllum sínum aðgerðum. Keflavík komnir áfram og 16 liða úrslitin framundan. Hrósa verður KS/Leiftri fyrir góða baráttu og fínan leik og þeir voru virkilega nálægt því að jafna leikinn undir lokin.
Keflavík: Árni Freyr Ásgeirsson, Guðjón Árni Antoníusson, Einar Orri Einarsson, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði (Alen Sutej 46.), Brynjar Örn Guðmundsson, Ómar Karl Sigurðsson (Jóhann Birnir Guðmundsson 85.), Andri Steinn Birgisson (Paul McShane 76.), Hólmar Örn Rúnarsson, Magnús Þórir Matthíasson, Guðmundur Steinarsson og Hörður Sveinsson.
Varamenn: Bergsteinn Magnússon, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson og Sigurður Gunnar Sævarsson.
Áhorfendur: 270.
Dómari: Erlendur Eiríksson og aðstoðardómarar Sindri Kristinsson og Ásgeir Þ. Ásgeirsson.
Eftirlitsmaður KSÍ var Örn Bjarnason.
Magnús Þórir fær frábæra fyrirgjöf frá Guðjóni...
...og setur hann í netið í rólegheitunum.
Markaskoraranum fagnað.