Fréttir

Knattspyrna | 27. maí 2007

Keflavík fær HK í heimsókn

Boðið verður upp á Víkurfréttaleikinn þegar Keflavík tekur á móti  HK í fjórðu umferð Landsbankadeildarinnar.  Leikurinn hefst klukkan 19:15  mánudaginn 28. maí.  HK eru nýliðar í Landsbankadeildinni en þrátt fyrir það hafa þeir komið á óvart og nælt sér í 4 stig úr þeim þremur leikjum sem búnir eru. Það er því von á hörkuleik sem enginn má láta fram hjá sér fara.

Mætum öll og styðjum Keflavík til sigurs.