Fréttir

Keflavík Íslandsmeistarar 4. flokks
Knattspyrna | 14. september 2013

Keflavík Íslandsmeistarar 4. flokks

Keflavík er Íslandsmeistai í 4. flokki karla eftir 2-1 sigur gegn Fjölni 2-1 á Nettó-vellinum.  Það er gaman að segja frá því að fjöldi fólks mætti á völlinn og það var heilmikil stemmning á leiknum.  Ólafur Ingi Jóhannsson og Rafn Edgar Sigmarsson komu Keflavík tveimur mörkum yfir snemma leiks en Torfi Tímoteus Gunnarsson minnkaði muninn fyrir Fjölni.  Fleiri urðu mörkin ekki og okkar piltar urðu Íslandsmeistarar.

Þjálfarar 4. flokks eru þeir Jóhann Birnir Guðmundsson, Arngrímur Jóhann Ingimundarson og Óskar Rúnarsson.

Við óskum strákunum og þjálfurum þeirra hjartanlega til hamingju með árangurinn.

Myndirnar með fréttinni eru fengnar að láni hjá Víkurfréttum.


Sigurbergur Bjarnason fyrirliði tók við bikarnum.