Keflavík Íslandsmeistarar í 7 manna bolta 2. flokks kvenna
Síðasta turnering í Íslandsmóti 2. flokks kvenna í 7 manna liðum fór fram hér í Keflavík í dag, sunnudaginn 22. ágúst. Allir leikirnir voru leiknir að Iðavöllum 7.
Vindurinn spilaði stórt hlutverk þegar stelpurnar fengu Tindastól/Neista og Fylki í heimsókn. Fyrst léku Keflavík og Fylkir og tapaðist sá leikur 0-1. Fylkir sigraði síðan Tindastól/Neista 3-1. Síðasti leikurinn var Keflavík - Tindastóll/Neisti og sigruðu stelpurnar okkar hann örugglega 3-0. Sigurrós Guðmundsdóttir skoraði tvö markanna og Guðbjörg Þorvaldsdóttir það þriðja. Stelpurnar voru auðvitað alveg gríðarlega ánægðar í leikslok og alveg rígmontnar og höfðu alveg efni á því! Sigurhringurinn var tekinn og síðan tóku stelpurnar við gullverðlaunum og veglegum bikar úr hendi Rúnars Arnarsonar, fulltrúa KSÍ og Þorsteins Magnússonar, formanns Knattspyrnudeildar Keflavíkur. Fylkisstúlkur lentu í öðru sæti og hrepptu því silfrið. Þess má geta að fyrir leikjahrinuna í dag höfðu stúlkurnar unnið alla sína leiki í mótinu. Þær enduðu því á toppnum og töpuðu aðeins þessum eina leik í dag.
Stúlkurnar í 2. flokki hafa æft með meistaraflokknum frá því í vetur og er það að skila sér vel í sterku liði nú. Til hamingju stelpur. þið eruð framtíðin.