Fréttir

Knattspyrna | 26. maí 2006

Keflavík-KR á sunnudag kl 19.15

Keflvíkingar mæta KRingum í Landsbankadeildinni á Keflavíkurvelli sunnudaginn 28.maí kl 19.45.

 

Keflavík er með fjögur stig í deildinni eftir þrjá leiki, en KR er með sex stig einnig eftir þrjá leiki. Markatala Keflavíkur er 4-4 en hjá KR er hún 3-4.

Þetta eru alltaf hörkuleikir þegar liðin mætast og mikið fjör á pöllunum. Leikurinn á sunnudag verður 34. viðureign liðanna á Keflavíkurvelli. Keflavík hefur sigrað í 15 leikjum, KR 9 leiki og 9 jafntefli. Síðast þegar liðin mættust á Keflavíkurvelli þá sigraði Keflavík 2-1 með mörkum frá Guðmundi Steinarssyni.

 

Margar og góðar upplýsingar frá Keflavík og KR eru til á ksi.is (upplýsingapakki) og hvet ég alla sem áhuga hafa á tölfræði ýmisskonar og fréttum af þessum viðureignum okkar gegn um árin að kíkja á þá góðu síðu. Frá KR pakkanum er minnst á fyrsta deildarleik félaganna sem fram fór á Melavellinum góða 29.ágúst 1958 og lauk honum með jafntefli 1-1. Reynir Þórðarson skoraði mark KR en Svavar Færseth mark Keflvíkinga. Síðan eru liðin mörg ár og hafa liðin spilað einhverja 79 leiki og þar hefur Keflavík vinninginn með 29.sigra, KR hefur sigrað í 27.leikjum og 23 sinnum jafntefli. Leikurinn á sunnudag verður því 80.deildarleikur félaganna. Markatala KR er betri eftir allar þessar viðureignir eða 108-120.

 

Hvet alla að mæta á völlinn og hvetja Keflavík til sigurs. Ég get lofað ykkur hörkuleik og betra veðri en síðast. ALLIR Á VÖLLINN.

 

JÖA