Keflavík og Fylkir í úrslitum
Það verða Keflavík og Fylkir sem leika til úrslita á Hitaveitumótinu sem nú fer fram í Reykjaneshöllinni. Mótið hófst í gær með tveimur leikjum. Keflavík vann stórsigur á Stjörnunni, 8-0. Hörður Sveinsson setti þrennu í leiknum, Hólmar Örn Rúnarsson og Magnús Þorsteinsson skoruðu báðir tvö mörk og Stefán Gíslason eitt. Í hinum leiknum sigruðu Fylkismenn lið FH 5-2 í fjörugum leik. Björgólfur Takefusa, Helgi Valur Daníelsson, Sigurjón Kevinsson, Valur Fannar Gíslason og Kristján Valdimarsson skoruðu fyrir Fylki en Guðmundur Sævarsson og Jón Þorgrímur Stefánsson skoruðu mörk FH.
Þar verða því Keflavík og Fylkir sem leika til úrslita á sunudaginn kl. 19:15. Stjarnan og FH leika hins vegar um 3. sætið í mótinu kl. 17:15. Við hvetjum stuðningsmenn til að koma og sjá leikina á sunnudaginn. Þá verður einnig leikið til úrslita í kvennaflokki. Stelpurnar byrja á laugardaginn en þá leika Keflavík og Stjarnan kl. 12:00 og síðan er leikur KR og ÍBV kl. 14:00.