Fréttir

Knattspyrna | 6. júní 2006

Keflavík Open

Keflavíkurstrákarnir héldu sitt árlega golfmót, Keflavík Open, á Hólmsvelli í Leiru á miðvikudaginn.  Mætt var kl 17:30 í blíðskaparveðri og menn tilbúnir í slaginn.  Sumir höfðu á orði að það væru snillingar í hópnum og væru betri golfarar en knattspyrnumenn.  Reynt var að taka menn á taugum áður en keppni hófst og menn líka ekki sáttir að sumir tóku með sér kylfubera.  Margar góðar sveiflur sáust annað slagið og sumir settu niður pútt af átta metrunum.  Að lokum stóðu þeir uppi sem sigurvegarar Guðmundur Mete og Ragnar Ólafsson með sama höggfjölda og þeir Geoff Miles og Simun Samuelsson, en högg þeirra á síðustu þremur holunum voru látin telja.  Ýmsar aðrar viðurkenningar voru veittar.  Kristján þjálfari fékk til dæmis verðlaun fyrir sitt gullfallega pútt af átta metrunum.

 

Eftir velheppnað golfmót var öllum spilurum og mökum þeirra boðið í veislu hjá framkvæmdarstjóra félagsins honum Ása sem kann svo sannarlega að búa til góðan mat og er snöggur að því.

 

JÖA

 

 

Leiran skartaði sínu fínasta þetta kvöld.

 

Gylfi Kristins, framkvæmdastjóri GS fer yfir reglurnar.

 

Hópur 1

 

Hópur 2

 

Hópur 3

 

Hópur 4

 

Hópur 5

 

Hópur 6, vantar Kalla Finnboga.

 

Markmannsþjálfarinn með tilþrif.

 

"Bíddu Óli þú fékkst 8 á þessa en ekki 3!!"

 

Buddy og Kenneth með 3. verðlaun.

 

Flottasti klæðnaðurinn

 

Jónas orðinn verulega svangur.

 

"Mér finnst kartöflur góðar."

 

Jónas og frú.

 

Verðlaunin hans Magga Þorsteins.

 

Ómar og frú.

 

Mannskapurinn orðinn vel svangur.

 

Kristján fékk verðlaun fyrir besta púttið.

 

Hjúkkan hans Kenneth, Frú Gustafsson.

 

Fleiri verðlaun, en þess ber að geta að Stjörnuhrásalat styrkti keppnina með ca. 6 pökkum af hrásalati.

Mennirnir í miðjunni mættu kannski snúa sér meira að salatinu!