Fréttir

Knattspyrna | 15. júlí 2008

Keflavík sækir KR heim

Keflavík leikur við KR-stúlkur í Landsbankadeild kvenna í kvöld, þriðjudaginn 15. júlí, og hefst leikurinn kl. 19:15 á KR-vellinum í Frostaskjóli.  Þetta er fyrsti leikur seinni umferðar Landsbankadeildarinnar.  Fyrri leikur liðanna á Sparisjóðsvellinum í Keflavík endaði með naumum sigri KR 1-2.  Vesna Smiljkovic kom Keflavík yfir en þær Hrefna Jóhannsdóttir og Kartín Ómarsdóttir skoruðu mörk KR.

Við hvetjum alla gera sér ferð í Frostaskjólið og hvetja stelpurnar okkar.