Fréttir

Knattspyrna | 22. mars 2010

Keflavík skorar mörkin!

Keflavík sigraði Þrótt 4-1 í Lengjubikarnum í Reykjaneshölli á laugardaginn var.  Keflvíkingar voru að leika sinn þriðja leik á sex dögum en liðið tapaði gegn KR síðastliðinn sunnudag og sigraði Blika á miðvikudag.

Leikurinn byrjaði fjörlega og á 27. mínútu skoraði Magnús Þórir Matthíasson og kom Keflavík í 1-0.  Hörður Bjarnason jafnaði fyrir Þrótt á 39. mínútu og staðan var 1-1 í hálfleik.

Keflavík byrjaði seinni hálfleikinn betur en samt voru Þróttarar alltaf líklegir án þess að skapa sér afgerandi færi.  Hörður Sveinsson skoraði glæsilegt mark á 63. mínútu og létti þá mörgum stuðningsmönnunum.  Í lokin skoruðu nýju mennirnir okkar svo tvö mörk.  Fyrst skoraði Ómar Karl Sigurðsson á 84. mínútu og Andri Steinn Birgisson innsiglaði stórsigur Keflavíkur á 90. mínútu.  Lokatölur 4-1.

Það voru greinileg þreytumerki á liði Keflavíkur í þessum leik en þrátt fyrir það skoraði liðið fjögur mörk og er það vel.  Liðið hefur skorað 17 mörk í fimm leikjum í Lengjubikarnum til þessa.  Frískir varamenn komu inn á í leiknum og stóðu sig mjög vel enda er bekkurinn sterkur.

Keflavík: Ómar Jóhannsson, Guðjón Árni Antoníusson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Alen Sutej, Hólmar Örn Rúnarsson (Gísli Örn Gíslason 88.),  Paul McShane (Brynjar Örn Guðmundsson 68.), Magnús Sverrir Þorsteinsson (Andri Steinn Birgisson 66.), Sigurður Gunnar Sævarsson (Ómar Karl Sigurðsson 54.), Hörður Sveinsson, Magnús Þórir Matthíasson.
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Tómas Karl Kjartansson og Þorsteinn Þorsteinsson

Dómari: Jóhannes Valgeirsson og aðstoðardómarar þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Eðvarð Atli Bjarnason. Eftirlitsmaður: Eyjólfur Ólafsson.

Næsti leikur liðsins er á laugardaginn 27. mars kl. 10:00 gegn HK í Reykjaneshöllinni.


Markaskorararnir Magnús Þórir, Andri Steinn, Ómar Karl og Hörður.
(Mynd: Jón Örvar)