Keflavíkurmót 5. flokks karla í Reykjaneshöll
Keflavíkurmót 5. flokks karla fer fram í Reykjaneshöll laugardaginn 2. nóvember. Það verða um 500 keppendur í höllinni frá 12 félögum. Mótið hefst kl. 8:30 með keppni í þýsku deildinni, mótinu lýkur svo um kl. 19:00 með leikjum í ensku deildinni.
Á laugardaginn fer einnig fram fimleikamót hjá fimleikadeild Keflavíkur og má því búast við miklu öngþveiti á bílastæðum við Reykjaneshöllina. Fólki er bent á að næg bílastæði eru við hliðina á höllinni við Njarðvíkurvöll. Sjá yfirlitsmynd af svæðinu/bílastæðum í kringum Reykjaneshöll.
Leikjadagskrá mótsins má finna HÉR