Fréttir

Keflavíkurmót 7. og 8. flokks um helgina
Knattspyrna | 15. nóvember 2013

Keflavíkurmót 7. og 8. flokks um helgina

Keflavíkurmót 7. flokks karla fer fram í Reykjaneshöll laugardaginn  16. nóvember. Það verða um 600 keppendur í höllinni frá 15 félögum. Mótið hefst kl. 8:30 með keppni í þýsku deildinni, mótinu lýkur svo um kl. 18:00 með leikjum í ensku deildinni.

Á sunnudaginn fer svo fram í fyrsta sinn mót hjá allra yngstu iðkendunum í 8. flokki (3 - 5 ára). Mótið hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 11:15.

Leikjadagskrá í 7. flokk má finna HÉR (uppært 15. nóv. kl. 16:50, eftir smá breytingu í íslensku deildinni)

Leikjadagskrá í 8. flokk má finna HÉR