Keflvíkingar í úrtakshópum
Það er mikið um að vera hjá yngri landsliðum Íslands þessa dagana og við Keflvíkingar eigum nokkra fulltrúa í úrtakshópum sem eru að koma saman næstu daga.
Kristrún Lilja Daðadóttir landsliðsþjálfari hefur valið Guðrúnu Ólöf Olsen í hóp til úrtaksæfinga hjá U16 ára landsliði stúlkna og eru þetta síðustu úrtaksæfingar fyrir opna Norðurlandamótið sem hefst hér á landi 30. júní. Guðrún er aðeins 15 ára gömul en lék sína fyrstu leiki með meistaraflokki síðasta sumar og hefur verið fastamaður í liði Keflavíkur í sumar.
Luka Kostic, landsliðsþjálfari U17 ára liðs karla, hefur valið 29 leikmenn til úrtaksæfinga um komandi helgi. Þrír Keflvíkingar eru í þessu úrtaki, þeir Árni Freyr Ásgeirsson, Róbert Örn Ólafsson og Sigurbergur Elísson. Æfingarnar fara fram á Tungubökkum í Mosfellsbæ en einnig sækja strákarnir fyrirlestur þessa helgi.
Við óskum krökkunum góðs gengis.
Guðrún Ólöf.
Róbert, Sigurbergur og Árni.