Fréttir

Keflvíkingar í yngri landsliðum
Knattspyrna | 15. apríl 2015

Keflvíkingar í yngri landsliðum

Tveir Keflvíkingar eru í U-17 ára landsliði karla sem leikur í undirbúningsmóti UEFA í Færeyjum 17.-21. apríl.  Það eru þeir Sigurbergur Bjarnason og Stefan Alexander Ljubicic en þeir leika báðir með 3. flokki Keflavíkur.  Þrátt fyrir ungan aldur komu þeir báðir við sögu með meistaraflokki í Lengjubikarnum í vor.

Dagana 23.-26. apríl fer fram undirbúningsmóti UEFA í Færeyjum fyrir U-17 ára landslið kvenna.  Þar eigum við einn fulltrúa en það er Anita Lind Daníelsdóttir.  Hún á þegar nokkra leiki með meistaraflokki og lék m.a. tvo leiki í 1. deildinni í fyrra.

Við óskum okkar fólki góðs gengis ytra en bæði liðin leika gegn N-Írlandi, Wales og Færeyjum í ferðinni.