Fréttir

Keflvíkingar með U-19 og U-15 ára
Knattspyrna | 2. október 2013

Keflvíkingar með U-19 og U-15 ára

Elías Már Ómarsson er í landsliði Íslands sem leikur í undankeppni Evrópumóts U-19 landsliða í Belgíu 8.-16. október.  Elías var fastamaður í Keflavíkurliðinu í sumar og á baki 17 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim tvö mörk.  Hann hefur þegar leikið sjö leiki með U-19 ára liðinu og skorað tvö mörk.  Keflvíkingurinn Samúel Kári Friðjónsson sem nú leikur með Reading er einnig í landsliðshópnum.

Þrir leikmenn Keflavíkur taka um helgina þátt í úrtaksæfingum U-15 ára landsliðsins vegna undankeppni Ólympíuleika æskunnar.  Þetta eru Ingimundur Aron Guðnason, Júlíus Davíð Júlíusson, Sigurbergur Bjarnason en þeir voru allir í Íslandsmeistaraliði Keflavíkur í 4. flokki í sumar.

Við óskum okkar piltum góðs gengis í verkefnunum framundan.

Myndin með fréttinni er af Íslandsmeisturm 4. flokks.