Keflvíkingar prúðastir
Á ársþingi KSÍ laugardaginn 11. febrúar fékk lið Keflavíkur Drago-styttuna sem prúðasta lið Landsbankadeildarinnar 2005. Það var Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sem afhenti Rúnari Arnarsyni, formanni knattspyrnudeildar, styttuna. Lið KA fékk viðurkenningu sem prúðasta lið 1. deildar síðasta sumar. Þetta er þriðja árið í röð sem Keflavíkurliðið fær slíka viðurkenningu, liðið var einnig prúðasta lið úrvalsdeildar árið 2004 og fékk einnig viðurkenningu þegar liðið lék í 1. deild árið 2003. Liðið hefur náð ágætum árangri þessi þrjú ár og það er gaman að sjá að prúður leikur og stigasöfnun geta farið vel saman. Þess má geta að Keflavík hlaut Drago-styttuna einnig árin 1976, 1979, 1993 og 1995.
Rúnar, Drago-styttan og Eggert.
(Mynd: Jón Örvar Arason)