Keflvískur sigur í dramatískum leik gegn Carl
Keflavík vann dramatískan sigur á Carl í undanúrslitaleik eldri flokks karla í gærkvöld en leikið var í Reykjaneshöllinn.
Það var boðið upp á hörku leik í Reykjaneshöllinni í gær á milli Keflavíkur og Carls í úrslitakeppnni eldri flokks. Leikurinn var bauð upp á þvílíka skemmtun og spennu fyrir þá rúmlega 100 áhorfendur sem lögðu leið sína í Reykjaneshöll. Keflavík byrjaði mun betur og settu fyrsta markið á 6. mínútu en þar var á ferðinni fyrrum varnarjaxlinn og núverandi markamaskína Keflavíkur, Jakob Már Jónharðsson, en drengurinn er búinn að setja 24 mörk í sumar.
Eftir markið settu liðsmenn Carl aukna pressu á Keflvíkinga sem skilaði þeim marki frá Þorvaldi Makan Sigbjörnssyni á 27. mínútu. Nokkrum mínútum síðar eða á 33. mínútu skoraði varnartröllið Þorsteinn Sveinsson mark af 3 m. færi eftir stórskemmtilegt spil í gegnum vörn Keflavíkur. Staðan í hálfleik því 1 - 2 fyrir Carl en þeir voru mun sprækari í fyrri hálfleik.
Carl hélt uppteknum hætti í byrjun síðari hálfleiks og náðu að auka muninn í 1 - 3 á 51. mínútu. með marki frá Herði Má Magnússyni. Keflvíkingar tóku vel við sér eftir þetta mark og náðu að jafna leikinn með mörkum frá Gunnari Oddssyni á 53. mínútu og Ragnari Steinarssyni úr vítaspyrnu á 57. mínútu.
Eftir þetta var leikurinn í járnum en það voru leikmenn Carls sem komust í 3 - 4 þegar 8 mínútur lifðu leiks með marki frá Sigurði Erni Ágústssyni. Keflvíkingar gerðu örvæntingafulla tilraun til þess að jafna og allt leit út fyrir að Carl væri að binda enda á þriggja ára óslitna sigurgöngu Keflavíkinga.
Þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma átti Guðmundur Þór Brynjarsson bylmingsskot langt utan af vinstri kanti sem stefndi framhjá fjærstönginni en þar var mættur Jóhann Steinarsson með markanefið, sem allir í fjölskyldunni virðast hafa, og læddi knettinum yfir marklínuna, 4 - 4. Leikmenn Carls tóku miðju og í sömu andrá flautaði dómarinn Ægir Magnússon til leiksloka.
Það var jafnræði með liðunum í framlengingunni og orkan farin að þrjóta hjá þeim "gömlu". Á 3. mínútu í síðari hluta framlengingarinnar fengu Keflvíkingar vítaspyrnu sem Ragnar Steinarsson skoraði úr af miklu öryggi og kættust nú heimamenn. En það stóð ekki lengi yfir því í næstu sókn Carls fengu þeir vítaspyrnu sem Hörður Már Magnússon skoraði úr af öryggi.
Leikurinn fjaraði svo út og við tók vítaspyrnukeppni (3 víti á hvort lið):
0 - 0 Ragnar Steinarsson lét verja frá sér
0 - 1 Finnur Kolbeinsson, Carl
1 - 1 Gunnar Oddsson
1 - 2 Hörður Már Magnússon, Carl
2 - 2 Zoran Daníel Ljubicic
2 - 2 Ólafur Pétursson ver snilldarlega frá Sigurði Erni Ágústssyni
Bráðabani:
3 - 2 Kristinn Guðbrandsson
Þegar Kristinn gekk að punktinum rifjuðu menn upp bikarúrslitaleikinn frá 1997 gegn Eyjamönnum. Þá var Kristinn í sömu stöðu, bráðabani í vítakeppni og hann tryggði Keflavík bikarmeistaratitilinn. Kristinn stóðst álagið þá líkt og nú.
3 - 2 Ólafur Pétursson ver glæsilega frá Þorvaldi Makan Sigbjörnssyni og sigur Keflavíkur í höfn :-)
Keflvíkingar eru þar með komnir í úrslitaleikinn í eldri flokki og geta tryggt sér titilinn þriðja árið í röð þegar þeir mæta ÍR-ingum miðvikudaginn 14. október (leikvöllur óákveðinn).
Maður leiksins: Ólafur Pétursson, Keflavík
Dómari: Ægir Magnússon
Áhorfendur: um 100
Leikskýrsla á ksi.is
Lið Keflavíkur:
Ólafur Pétursson (m), Zoran Daníel Ljubicic, Kristinn Guðbrandsson, Karl Finnbogason, Jóhann Steinarsson, Guðmundur Þór Brynjarsson, Gunnar Magnús Jónsson, Ragnar Steinarsson, Gunnar Oddsson, Jóhann B. Magnússon, Ólafur Þór Gylfason, Garðar Már Newman, Jakob Már Jónharðsson.
Lið Carls:
Jörundur Kristinsson, Veigur Sveinsson, Hörður Már Magnússon, Þorsteinn Sveinsson, Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, Sigurður Örn Ágústsson, Hallsteinn I. Traustason, Hermann Arason, Finnur Kolbeinsson, Gunnar Pétursson.
Sigurreifir Keflvíkingar í leikslok
Efri röð frá vinstri: Gunnar Magnús Jónsson, Karl Finnbogason, Guðmundur Þór Brynjarsson, Garðar Már Newman, Ragnar Steinarsson, Zoran Daníel Ljubicic og Guðmundur Steinarsson þjálfari.
Neðri röð frá vinstri: Ólafur Þór Gylfason, Jóhann Steinarsson, Kristinn Guðbrandsson, Jóhann B. Magnússon, Ólafur Pétursson, Gunnar Oddsson og Jakob Már Jónharðsson.
Ólafur Pétursson einbeittur á svip. Hér gerir hann sig kláran að verja frá Sigurði Erni Ágústssyni í vítakeppninni.
Kristinn Guðbrandsson kátur í leikslok. Drengurinn tryggði sigurinn með marki í bráðabana.
Þess má og geta að Kristinn "fagnar" 40 ára afmæli sínu í dag (7. okt) og eru honum sendar hamingjuóskir í tilefni dagsins.