Fréttir

Kiko til Keflavíkur
Knattspyrna | 25. febrúar 2015

Kiko til Keflavíkur

Keflavík hefur samið við Insa Bohigues Fransisco um að leika með liðinu í sumar.  Insa er 27 ára gamall miðvörður og er kallaður Kiko Insa.  Hann lék með Víkingi Ólafsvík árið 2013 og lék þá 15 leiki í Pepsi-deildinni og skoraði eitt mark.  Hann hefur leikið með liðum á Spáni, Belgíu og Þýskalandi og lék í Lettlandi á síðasta ári.  Við bjóðum Kiko velkominn til Keflavíkur.

Keflavík hefur einnig verið í viðræðum við Þór Akureyri um að fá Jóhann Helga Hannesson frá félaginu en enn ber nokkuð í milli í þeim viðræðum.