Fréttir

Knattspyrna | 6. mars 2009

Kjallarinn styrkir leikmenn m.fl. karla

Í kvöld verður herrakvöld knattspyrnudeildarinnar þar sem væntanlega verður mikið fjör.  Ekki er á allt kosið í þessu lífi og eiga því ekki allir kost á því að mæta í gleðina.  Kjallaragengið er félagsskapur eldri knattspyrnukappa úr Keflavík sem vilja láta gott af sér leiða til drengjanna í m.fl.  Þar sem nokkrir úr hópnum komast ekki í kvöld þá hefur Kjallaragengið ákveðið að greiða úr sjóði sínum 20.000 kr. sem sárabót fyrir það að geta ekki verið á staðnum.  Eflaust eru fleiri félagshópar sem eins er fyrir komið og skorar Kjallaragengið á þá að gera slíkt hið sama.  Fulltrúi Kjallarans mun afhenda framlagið á herrakvöldinu í kvöld.  Áfram Keflavík !