Fréttir

Knattspyrna | 22. maí 2004

Knattspyrnudeild gerir enn fleiri samstarfssamninga

Eins og bæjarbúar hafa tekið eftir er komin auglýsing frá KFC á stóra skiltið á Reykjaneshöllinni.  Knattspyrnudeild og KFC hafa ákveðið að vinna saman og er auglýsingin fyrsti vísir að því samstarfi sem frekar verður mótað á næstu dögum og kynnt hér á síðunni.  Það er mikilvægt fyrir Knattspyrnudeildina að ná samstarfi við aðila eins og KFC og bjóðum við þá velkomna í bæinn.  Þeir gera ekki annað en að bæta þá skemmtilegu flóru veitingastaða sem eru til staðar í Reykjanesbæ.

Þá eru tilbúnir til undirskriftar samningar við Áfanga en Smári Helgason eigandi fyrirtækisins hefur styrkt deildina lengi, auk þess sem hann er öflugur í unglingastarfi deildarinnar.

Bílasprautun Suðurnesja hefur einnig um árabil verið öflugur bakhjarl Knattspyrnudeildar Keflavíkur og nú liggur fyrir samningur til undirskriftar til að innsigla það góða samstarf sem Knattspyrnudeildin hefur átt við Ólaf
Bjarnason og starfsmenn hans.

Þá eru í vinnslu nokkrir samstarfssamningar við fyrirtæki af Suðurnesjum og af Reykjavíkursvæðinu.  Knattspyrnudeildin mætir velvilja fyrirtæja og einstaklinga hér í bæ og árangur liðsins í Landsbankadeildinni gefur okkur byr undir báða vængi á öllum vígstöðvum.