Knattspyrnuskóli Keflavíkur 2016
Unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur býður upp á sumarnámskeið fyrir stelpur og stráka á aldrinum 6-12 ára. Námskeiðið verður byggt upp á knattspyrnuæfingum við hæfi hvers og eins þar sem tækni, leikskilningur og leikgleði verða í fyrirrúmi. Markmiðið með námskeiðinu er að allir hafi gaman af og kunni enn betur að meta það að klæðast Keflavíkurtreyjunni.
Knattspyrnuskólinn verður vikurnar 4.-8., 11.-15. og 18.-22. júlí milli kl. 8:30 til 12:00 virka daga.
Þau börn sem eru að æfa knattspyrnu fara á æfingu á námskeiðatíma eða beint í kjölfarið af námskeiðinu. Mæting á nýja völlinn fyrir aftan Reykjaneshöllina klæddur eftir veðri og nauðsynlegt er að taka hollt nesti með.
Skráning í tölvupósti á johannbirnir@keflavik.is.
Barnið er skráð á námskeiðið þegar greiðsla hefur borist á reikning og vinsamlegast setjið nafn barns og kennitölu barns í tilvísun (það er mjög mikilvægt svo hægt sé að sjá greiðslu).
Leggist inn á reikning 0121-05-411376, kt. 681201-5130.
2 vikur kosta 12.000 kr. og 3 vikur kosta 15.000 kr.
Veittur er 10% systkinaafsláttur.
Skólastjóri er Jóhann Birnir, yfirþjálfari yngri flokka hjá Keflavík.