Fréttir

Knattspyrnuskóli Keflavíkur í júní og júlí
Knattspyrna | 16. maí 2013

Knattspyrnuskóli Keflavíkur í júní og júlí

Unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur býður upp á sumarnámskeið fyrir  stelpur og stráka á aldrinum 6-12 ára.  Námskeiðið verður byggt upp á knattspyrnuæfingum við hæfi hvers og eins þar sem tækni, leikskilningur og leikgleði verða í fyrirrúmi.  Einnig verður brugðið út af vananum með t.d. fyrirlestri um sögu knattspyrnunnar í Keflavík og fótboltaspurningakeppni.  Markmiðið með námskeiðinu er að allir hafi gaman af og kunni enn betur að meta það að klæðast Keflavíkurtreyjunni.

Knattspyrnuskólinn verður vikurnar 10.-14. júní, 18.-24. júní og 1.-5. júlí, milli kl. 8:00-12:00 virka daga.  Þau börn sem eru að æfa knattspyrnu fara á æfingu á námskeiðatíma (5. flokkur í framhaldi af skólanum).  Mæting á nýja völlinn fyrir aftan Reykjaneshöllina klæddur eftir veðri og nauðsynlegt er að taka hollt nesti.

Skráning í tölvupósti johannbirnir@gmail.com.

Barnið er skráð á námskeiðið þegar greiðsla hefur borist á reikning og vinsamlegast setjið nafn barns og kennitölu barns í tilvísun (það er mjög mikilvægt svo hægt sé að sjá greiðslu).  Leggist inn á 0121-05-411376. kt. 681201-5130.

1 vika kostar 6.000 kr.,
2 vikur kosta 9.000 kr.,
og 3 vikur kosta 12.000 kr..
Veittur er 50 % afsláttur fyrir systkini.


Skólastjóri er Jóhann Birnir, einnig munu meistaraflokksleikmenn knattspyrnunnar í Keflavík koma og hjálpa til.