Kolaport í 88 húsinu
Knattspyrnudeild hefur fengið heimild frá MÍT-ráði og Stefáni Bjarkasyni til að nýta H-88 húsið til að hafa opið KOLAPORT í húsinu nokkra laugardaga fyrir jól. Hugmyndin er að fá fólk í Reykjanesbæ sem er að hefja jólahreingerningar að taka saman allt það dót, gamla muni, bækur, myndir, plötur, stóla, borð og hvað eina og gefa Knattspyrnudeildinni og verður það síðan selt að KOLAPORTSVERÐI. Reynt verður að skapa stemmningu opnunardagana og fá aðila hér í bæ sem vilja selja handverk og hvað eina sem selt er á mörkuðum eins og KOLAPORTINU.
Þeir aðilar sem styðja vilja við bakið á hugmyndinni og gefa dót úr geymslunni og bílskúrnum hafið samband við Ásmund í síma 894-3900 og mun hann taka á móti vörum eftir samkomulagi eða sækja það heim til fólks.
Þeir aðilar sem vilja selja vöru og þjónustu hafið einnig samband við Ásmund í sama síma.
Meira síðar.