Kópavogsliðin í VISA-bikarnum
Karla- og kvennalið Keflavíkur leika bæði í Kópavogi í næstu umferð VISA-bikarsins. Strákarnir heimsækja lið HK í 16 liða úrslitunum en eins og flestir muna mættust þessi lið einmitt í undanúrslitum keppninnar í fyrra. Stelpurnar fara einnig í Kópavoginn en þær drógust gegn Breiðablik í 8 liða úrslitum. Liðin léku hörkuleik í Landsbankadeildinni fyrr í sumar þar sem Blikastúlkur unnu nauman sigur. Leikur kvennaliðanna fer fram 12. júlí en karlaliðin leika 4. eða 5. júlí.