KR - Keflavík á föstudag kl. 19:00
KR og Keflavík mætast í undanúrslitum Lengjubikarsins í kvöld, föstudag. Leikurinn verður í Egilshöll og hefst kl. 19:00. Dómari leiksins verður Þóroddur Hjaltalín, aðstoðardómarar Frosti Viðar Gunnarsson og Gunnar Helgason, varadómari verður Hjalti Þór Halldórsson og Björn Guðbjörnsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Við vekjum athygli á því að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.
Liðið sem sigrar í leiknum mætir Val eða Víking R. í úrslitaleik Lengjubikarsins. Úrslitaleikurinn fer fram á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 21. apríl, og verður í Egilshöllinni kl. 19:15.