KR - Keflavík á föstudag kl. 21:00
Föstudaginn 22. febrúar er komið að leik í Lengjubikarnum en þá leika okkar menn við KR í Egilshöllinni. Að þessu sinni er leikið nokkuð seint en flautað verður til leiks kl. 21:00. Fyrir þá sem ekki komast á leikinn má geta þess að hann verður sýndur beint á SportTV. Dómari leiksins verður Valgeir Valgeirsson og aðstoðardómarar þeir Halldór Breiðfjörð Jóhannsson og Björn Valdimarsson.
Keflavík gerði jafntefli við Hauka í fyrsta leik sínum í keppninni en KR-ingar unnu Stjörnuna.