Fréttir

KR - Keflavík á laugardag kl. 14:00
Knattspyrna | 28. september 2012

KR - Keflavík á laugardag kl. 14:00

Þá er ekkert eftir nema síðasti leikur keppnistímabilsins en þá mætast KR og Keflavík í 22. umferð Pepsi-deildarinnar laugardaginn 29. september.  Leikurinn verður á KR-velli og hefst kl. 14:00.  Fyrir leikinn er Keflavík í 9. sæti deildarinnar með 27 stig en KR er í 5. sæti með 32 stig.  Það er því að litlu að keppa hjá liðunum eins og hefur reyndar sést í leikjum þeirra í síðustu umferðum.  Dómari leiksins verður Þóroddur Hjaltalín Jr., aðstoðardómarar Einar Sigurðsson og Bryngeir Valdimarsson, varadómari Þórður Már Gylfason og eftirlitsmaður KSÍ verður Jón Þór Ágústsson. 

Keflavík og KR hafa leikið 92 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958.  Jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 32 leikjum en KR í 31 leik, 29 leikjanna hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 128-140, KR í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974.  Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða.  Sex leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað tólf mörk gegn KR, Hörður Sveinsson þrjú, Jóhann B. Guðmundsson tvö og þeir Frans Elvarsson, Hilmar Geir Eiðsson og Magnús Þorsteinsson eitt mark hver.

Liðin hafa mæst 12 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast nú í sumar.  Keflavík hefur unnið 5 bikarleiki en KR 7.  Markatalan í bikarnum er 20-26 fyrir KR.  Guðmundur Steinarsson hefur skorað eitt bikarmark gegn KR.

Liðin mættust fyrr í sumar á Nettó-vellinum og gerðu þá 1-1 jafntefli.  Emil Atlason náði forystunni fyrir KR en Guðmundur Steinarsson jafnaði fyrir Keflavík.

Okkur hefur gengið vel gegn KR-ingum á heimavelli þeirra undanfarin ár.  KR hefur aðeins unnið ein af síðustu níu leikjum liðanna á KR-vellinum, sex þeirra hefur lokið með jafntefli og Keflavík hefur unnið tvo þessara leikja.

Þó nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR í gegnum árin og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum.  Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross, Pétur Pétursson og Willum Þór Þórsson hafa allir þjálfað bæði liðin.  Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna.  Seinni árin hafa Haukur Ingi Guðnason, Stefán Gíslason og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða.  Tveir fyrrverandi leikmenn okkar, Baldur Sigurðsson og Jónas Guðni Sævarsson, leika nú með KR.

Úrslit í leikjum KR og Keflavíkur á heimavelli KR-inga hafa orðið þessi undanfarin ár:

2011 KR - Keflavík 1-1 Hilmar Geir Eiðsson
2010 KR - Keflavík 0-0  
2009 KR - Keflavík 4-1 Alen Sutej
2008 KR - Keflavík 2-2 Guðmundur Steinarsson
Jón Gunnar Eysteinsson
2007 KR - Keflavík 1-2 Guðmundur Steinarsson
Símun Samuelsen
2006 KR - Keflavík 2-2 Guðmundur Steinarsson
Þórarinn Kristjánsson
2005 KR - Keflavík 1-3 Kenneth Gustafsson
Baldur Sigurðsson
Hörður Sveinsson
2004 KR - Keflavík 1-1 Hólmar Örn Rúnarsson
2002 KR - Keflavík 2-2 Haukur Ingi Guðnason
Hólmar Örn Rúnarsson
2001 KR - Keflavík 2-0