KR - Keflavík á sunnudag kl. 18:00
Það verður stórleikur á KR-vellinum þegar Keflavík kemur í heimsókn í 17. umferð Landsbankadeildarinnar sunnudaginn 24. ágúst kl. 18:00. Það þarf varla að taka fram að um stórleik er að ræða því vonandi verða allir leikir Keflavíkur stórleikir það sem eftir er sumars. Fyrir leikinn er Keflavík í toppsæti deildarinnar með 36 stig en KR-ingar eru í 5.-6. sæti með 25 stig. Í leiknum mætast einnig tveir markahæstu leikmenn Landsbankadeildarinnar, Guðmundur Steinarsson er nú markahæstur með tólf mörk og næstur honum kemur Björgólfur Takefusa með 11 stykki.
Þess má geta að Keflavík hefur gengið afar vel á heimavelli KR-inga undanfarin. Síðasta tapið í Vesturbænum kom árið 2000 og Keflavík hefur aðeins tapað tveimur af síðustu tíu útileikjum sínum gegn KR; fjórir leikir hafa unnist og fjórum lokið með jafntefli. Dómari leiksins verður Þóroddur Hjaltalín Jr., aðstoðardómarar Áskell Þór Gíslason og Smári Stefánsson og varadómari er Hans Kristján Scheving. Eftirlitsmaður KSÍ verður Arnar S. Guðlaugsson . Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og þeir sem eru löglega afsakaðir og komast alls ekki á völlinn geta því fylgst með honum þar.
Keflavík og KR hafa leikið 84 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958. Jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 32 leikjum en KR í 27 leikjum, 25 leikjanna hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 120-126, KR í vil. Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974. Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða. Sjö leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað níu mörk, Þórarinn Kristjánsson og Símun Samuelsen fjögur, Hörður Sveinsson þrjú, Jóhann B. Guðmundsson og Hólmar Örn Rúnarsson tvö og þeir Kenneth Gustavsson og Magnús Þorsteinsson eitt mark hvor.
Liðin hafa mæst 11 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast í úrslitaleiknum árið 2006. Keflavík hefur unnið 5 bikarleiki en KR 6. Markatalan í bikarnum er 18-23 fyrir KR. Guðjón Antoníusson og Guðmundur Steinarsson hafa skorað eitt bikarmark gegn KR en mark Guðjóns kom einmitt í úrslitaleiknum árið 2006 þegar Keflavík vann 2-0.
Fyrr í sumar mættust liðin á Sparisjóðsvellinum í 6. umferð Landsbankadeildarinnar. Keflavík vann þá 4-2 í fjörugum leik. Guðmundur Steinarsson skoraði tvö marka Keflavíkur og Símun Samuelsen og Hörður Sveinsson eitt hvor en Björgólfur Takefusa gerði bæði mörk KR.
Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum. Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross og Pétur Pétursson hafa allir þjálfað bæði liðin. Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna. Sonur Guðna, Haukur Ingi, hefur einnig leikið fyrir Keflavík og KR og seinni árin hafa Stefán Gíslason og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða. Nú leikur Jónas Guðni Sævarsson með KR eftir að hafa skipt úr Keflavík fyrir þetta tímabil.
Úrslit í leikjum KR og Keflavíkur í Vesturbænum hafa orðið þessi undanfarin ár:
2006 |
KR - Keflavík |
1-2 | Guðmundur Steinarsson Símun Samuelsen | ||
2006 |
KR - Keflavík |
2-2 | Guðmundur Steinarsson Þórarinn Kristjánsson | ||
2005 |
KR - Keflavík |
1-3 | Kenneth Gustavsson Baldur Sigurðsson Hörður Sveinsson | ||
2004 |
KR - Keflavík |
1-1 | Hólmar Örn Rúnarsson | ||
2002 |
KR - Keflavík |
2-2 | Haukur Ingi Guðnason Hólmar Örn Rúnarsson | ||
2001 |
KR - Keflavík |
2-0 | |||
2000 |
KR - Keflavík |
2-3 | Guðmundur Steinarsson 2 Kristján Brooks | ||
1999 |
KR - Keflavík |
3-2 | Þórarinn Kristjánsson Kristján Brooks | ||
1998 |
KR - Keflavík |
0-0 | |||
1997 |
KR - Keflavík |
1-2 | Eysteinn Hauksson Jóhann B. Guðmundsson |