Fréttir

Knattspyrna | 23. júlí 2005

KR - Keflavík á sunnudag kl. 19:15

Sunnudaginn 24. júlí mætast KR og Keflavík í 12. umferð Landsbankadeildarinnar.  Keflavík er nú í 4. sæti deildarinnar með 16 stig en KR-ingar koma þar skammt á eftir í 6. sæti með 13 stig.  Það verður því án efa hart barist í Frostaskjólinu en leikir þessara liða hafa nær undantekningarlaust verið fjörugir og skemmtilegir.  Af síðustu 10 leikjumm þessara liða á heimavelli KR-inga hefur 6 lokið með jafntefli en hvort liðið unnið tvo leiki.  Í leikjunum tíu hafa verið skoruð 33 mörk.  Dómari á KR-vellinum verður Eyjólfur M. Kristinsson, aðstoðardómarar Eyjólfur Ágúst Finnsson og Einar Örn Daníelsson og eftirlitsmaður KSÍ verður Þorvarður Björnsson.

Keflavík og KR hafa leikið 78 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958.  Jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 28 leikjum en KR í 27 leikjum, 23 leikjanna hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 105-119, KR í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974.  Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða.  Þrír leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍBV í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað fimm mörk, Hólmar Örn Rúnarsson tvö og Hörður Sveinsson eitt mark.

Liðin hafa mæst 10 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast árið 2000.  Keflavík hefur unnið 4 bikarleiki en KR 6.  Markatalan í bikarnum er 16-23 fyrir KR.  Guðmundur Steinarsson hefur skorað eitt bikarmark gegn KR en það var í síðasta bikarleik liðanna sem lauk með 2-1 sigri Keflvíkinga árið 2000.

Fyrr í sumar mættust liðin í 3. umferð Landsbankadeildarinnar á Keflavíkurvelli.  Keflavík vann leikinn 2-1 með tveimur mörkum frá Guðmundi Steinarssyni.  Bjarnólfur Lárusson skoraði mark KR en Ómar Jóhannsson varði vítaspyrnu í leiknum.

Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum.  Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross og Pétur Pétursson hafa allir þjálfað bæði liðin.  Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna.  Sonur Guðna, Haukur Ingi, hefur einnig leikið fyrir Keflavík og KR og seinni árin hafa Stefán Gíslason og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða.

Úrslit í leikjum KR og Keflavíkur í Vesturbænum hafa orðið þessi undanfarin ár:

     2004    

KR - Keflavík

1-1 Hólmar Örn Rúnarsson
2002

KR - Keflavík

2-2 Haukur Ingi Guðnason
Hólmar Örn Rúnarsson
2001

KR - Keflavík

2-0
2000

KR - Keflavík

2-3 Guðmundur Steinarsson 2
Kristján Brooks
1999

KR - Keflavík

3-2 Þórarinn Kristjánsson
Kristján Brooks
1998

KR - Keflavík

0-0
1997

KR - Keflavík

1-2 Eysteinn Hauksson
Jóhann B. Guðmundsson
1996

KR - Keflavík

1-1 Jóhann B. Magnússon
1995

KR - Keflavík

3-3 Marco Tanasic 2
Óli Þór Magnússon
1994

KR - Keflavík

1-1 Kjartan Einarsson
1993

KR - Keflavík

2-2 Óli Þór Magnússon 2

 

Grein úr Morgunblaðinu um leik KR og Keflavíkur í september árið 1973. 
Keflavík vann 3-2 í hörkuleik og fór langt með að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.