KR - Keflavík á sunnudag kl. 19:15
Sunnudaginn 14. júní fara okkar menn í Vesturbæinn og heimsækja KR-inga. Leikurinn fer fram á KR-velli við Frostaskjól og hefst kl. 19:15. Það þarf ekki að taka fram að leikir þessara liða eru alltaf stórskemmtilegir og hart tekist á. Það setur enn meiri spennu í leikinn nú að liðin eru jöfn í 3.-5. sæti Pepsi-deildarinnar með 11 stig. Þess má geta að Keflavík hefur gengið afar vel á heimavelli KR-inga undanfarin. Síðasta tapið í Vesturbænum kom árið 2001 og Keflavík hefur aðeins tapað tveimur af síðustu tíu útileikjum sínum gegn KR; þrír leikir hafa unnist og fimm lokið með jafntefli. Dómari leiksins verður Jóhannes Valgeirsson, aðstoðardómarar þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Guðmundur Ársæll Guðmundsson.
Keflavík og KR hafa leikið 85 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958. Jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 32 leikjum en KR í 27 leikjum, 26 leikjanna hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 122-128, KR í vil. Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974. Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða. Sjö leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Símun Samuelsen hefur skorað fjögur mörk, Hörður Sveinsson þrjú, Jóhann B. Guðmundsson og Hólmar Örn Rúnarsson tvö og þeir Jón Gunnar Eysteinsson, Magnús Þorsteinsson og Haukur Ingi Guðnason eitt mark hver.
Liðin hafa mæst 11 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast í úrslitaleiknum árið 2006. Keflavík hefur unnið 5 bikarleiki en KR 6. Markatalan í bikarnum er 18-23 fyrir KR. Guðjón Antoníusson hefur skorað eitt bikarmark gegn KR en mark Guðjóns kom einmitt í úrslitaleiknum árið 2006 þegar Keflavík vann 2-0.
Liðin mættust tvisvar í úrvalsdeildinni í fyrra eins og lög gera ráð fyrir. Fyrst léku liðin á Sparisjóðsvellinum og Keflavík vann þá 4-2 í fjörugum leik. Guðmundur Steinarsson skoraði tvö marka Keflavíkur og Símun Samuelsen og Hörður Sveinsson eitt hvor en Björgólfur Takefusa gerði bæði mörk KR. Seinni leiknum á KR-velli lauk með 2-2 jafntefli. Guðmundur Steinarsson og Jón Gunnar Eysteinsson skoruðu fyrir okkar lið; Björgólfur Takefusa gerði fyrra mark KR en það seinna var sjálfsmark.
Eins og flestir vita leika tveir fyrrverandi leikmenn okkar nú með KR, þeir Jónas Guðni Sævarsson og Baldur Sigurðsson. Í okkar liði er svo Haukur Ingi Guðnason sem lék með KR á sínum tíma. Þó nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR í gegnum árin og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum. Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross og Pétur Pétursson hafa allir þjálfað bæði liðin. Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna. Seinni árin hafa Stefán Gíslason og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða.
Úrslit í leikjum KR og Keflavíkur í Vesturbænum hafa orðið þessi undanfarin ár:
2008 |
KR - Keflavík |
2-2 | Guðmundur Steinarsson Jón Gunnar Eysteinsson | ||
2007 |
KR - Keflavík |
1-2 | Guðmundur Steinarsson Símun Samuelsen | ||
2006 |
KR - Keflavík |
2-2 | Guðmundur Steinarsson Þórarinn Kristjánsson | ||
2005 |
KR - Keflavík |
1-3 | Kenneth Gustavsson Baldur Sigurðsson Hörður Sveinsson | ||
2004 |
KR - Keflavík |
1-1 | Hólmar Örn Rúnarsson | ||
2002 |
KR - Keflavík |
2-2 | Haukur Ingi Guðnason Hólmar Örn Rúnarsson | ||
2001 |
KR - Keflavík |
2-0 | |||
2000 |
KR - Keflavík |
2-3 | Guðmundur Steinarsson 2 Kristján Brooks | ||
1999 |
KR - Keflavík |
3-2 | Þórarinn Kristjánsson Kristján Brooks | ||
1998 |
KR - Keflavík |
0-0 |