KR - Keflavík á sunnudag kl. 20:00
Sunnudaginn 3. júlí leika okkar menn gegn KR 8 liða úrslitum Valitor-bikarsins. Leikurinn fer fram á KR-velli við Frostaskjól og hefst kl. 20:00. Það þarf ekki að taka fram að leikir þessara liða eru alltaf stórskemmtilegir og hart tekist á og nú er sæti í undarúrslitum bikarsins í húfi. Dómari leiksins verður Valgeir Valgeirsson, aðstoðardómarar þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Oddbergur Eiríksson og varadómari er Guðmundur Ársæll Guðmundsson. Ólafur Ragnarsson er eftirlitsmaður KSÍ. Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Liðin hafa mæst 11 sinnum í bikarkeppninni, fyrst árið 1963 og síðast í úrslitaleiknum árið 2006. Keflavík hefur unnið 5 bikarleiki en KR 6. Markatalan í bikarnum er 18-23 fyrir KR. Guðmundur Steinarsson og Guðjón Antoníusson hefur skorað eitt bikarmark gegn KR en mark Guðjóns kom einmitt í úrslitaleiknum árið 2006 þegar Keflavík vann 2-0.
Bikarleikir milli Keflavíkur og KR:
2006 | Úrslit |
KR - Keflavík |
0-2 | Guðjón Antoníusson Baldur Sigurðsson | ||
2000 | 16 liða |
KR - Keflavík |
1-2 | Hjálmar Jónsson Guðmundur Steinarsson | ||
1995 | Undanúrslit |
Keflavík - KR |
0-1 | |||
1994 | Undanúrslit |
Keflavík - KR |
2-4 | Marco Tanasic Óli Þór Magnússon | ||
1984 | 16 liða |
KR - Keflavík |
5-1 | Ragnar Margeirsson | ||
1982 | Undanúrslit |
Keflavík - KR |
2-1 | Ragnar Margeirsson 2 | ||
1975 | Undanúrslit |
Keflavík - KR |
2-1 | Jón Ólafur Jónsson Guðjón Guðjónsson | ||
1972 | 8 liða |
KR - Keflavík |
2-4 | Steinar Jóhannsson Jón Ólafur Jónsson Einar Gunnarsson Ólafur Júlíusson | ||
1967 | 8 liða |
KR - Keflavík |
2-1 | Einar Gunnarsson | ||
1966 | Undanúrslit |
Keflavík - KR |
0-3 | |||
1963 | Undanúrslit |
KR - Keflavík |
3-2 | Jón Jóhannsson Sigurður Albertsson |