Fréttir

Knattspyrna | 24. maí 2010

KR - Keflavík á þriðjudag kl. 20:00

Þriðjudaginn 26. maí fara okkar menn í Vesturbæinn og heimsækja KR-inga í 4. umferð Pepsi-deildarinnar.  Leikurinn fer fram á KR-velli við Frostaskjól og hefst kl. 20:00.  Það þarf ekki að taka fram að leikir þessara liða eru alltaf stórskemmtilegir og hart tekist á.  Það setur enn meiri spennu í leikinn nú að fyrir leikinn eru okkar menn í efst sæti deildarinnar með níu stig en KR-ingar hafa farið rólega af stað og eru með tvö stig eftir þrjá leiki.  Dómari leiksins verður Valgeir Valgeirsson og aðstoðardómarar þeir Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Viðar Helgason.  Varadómari er Leiknir Ágústsson og  Þórður Ingi Guðjónsson er eftirlitsmaður KSÍ.  Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport fyrir þá sem ekki komast í Vesturbæinn.

Keflavík og KR hafa leikið 87 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958.  Jafnræði hefur verið með liðunum í gegnum árin, Keflavík hefur sigrað í 32 leikjum en KR í 29 leikjum, 26 leikjanna hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 124-134, KR í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur í innbyrðis leikjum liðanna var 5-1 sigur á Keflavíkurvelli árið 1974.  Stærsti sigur KR-inga er hins vegar 8-1 árið 1960 og það er jafnframt mesti markaleikur þessara liða.  Sjö leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn KR í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað ellefu mörk gegn KR, Hörður Sveinsson þrjú, Jóhann B. Guðmundsson og Hólmar Örn Rúnarsson tvö og þeir Alen Sutej, Magnús Þorsteinsson og Haukur Ingi Guðnason eitt mark hver.

Liðin hafa mæst 11 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1963 og síðast í úrslitaleiknum árið 2006.  Keflavík hefur unnið 5 bikarleiki en KR 6.  Markatalan í bikarnum er 18-23 fyrir KR.  Guðmundur Steinarsson og Guðjón Antoníusson hefur skorað eitt bikarmark gegn KR en mark Guðjóns kom einmitt í úrslitaleiknum árið 2006 þegar Keflavík vann 2-0.

Liðin mættust tvisvar í Pepsi-deildinni í fyrra eins og lög gera ráð fyrir og sigruðu KR-ingar í báðum leikjunum.  Leikurinn á KR-velli fór 1-4 þar sem Alen Sutej skoraði fyrir Keflavík en Guðmundur Benediktsson, Jónas Guðni Sævarsson, Óskar Örn Hauksson og Baldur Sigurðsson gerðu mörk heimamanna.  Leikur liðanna á Sparisjóðsvellinum var sögulegur en þar unnu KR-ingar 1-2.  Guðmundur Steinarsson kom Keflavík yfir í leiknum en Gunnar Örn Jónsson og Björgólfur Takefusa tryggðu gestunum sigur.

Þó nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og KR í gegnum árin og ekki síður hafa félögin deilt sömu þjálfurunum.  Guðni Kjartansson, Hólmbert Friðjónsson, Ian Ross og Pétur Pétursson hafa allir þjálfað bæði liðin.  Upp úr 1990 var hálfgerð Keflavíkurnýlenda í Vesturbænum þegar Ólafur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson léku þar allir undir stjórn Guðna.  Seinni árin hafa Stefán Gíslason, Jónas Guðni Sævarsson og markmennirnir Bjarki Freyr Guðmundsson og Gunnleifur Gunnleifsson skipt milli þessara liða.  Haukur Ingi Guðnason lék á sínum tíma með KR og einn fyrrverandi leikmaður okkar, Baldur Sigurðsson, leikur nú með liðinu.

Úrslit í leikjum KR og Keflavíkur í Vesturbænum hafa orðið þessi undanfarin ár:

2009

KR - Keflavík

1-4 Alen Sutej
2008

KR - Keflavík

2-2 Guðmundur Steinarsson
Jón Gunnar Eysteinsson 
2007

KR - Keflavík

1-2 Guðmundur Steinarsson
Símun Samuelsen
2006

KR - Keflavík

2-2 Guðmundur Steinarsson
Þórarinn Kristjánsson
2005

KR - Keflavík

1-3 Kenneth Gustavsson
Baldur Sigurðsson
Hörður Sveinsson
     2004    

KR - Keflavík

1-1 Hólmar Örn Rúnarsson
2002

KR - Keflavík

2-2 Haukur Ingi Guðnason
Hólmar Örn Rúnarsson
2001

KR - Keflavík

2-0
2000

KR - Keflavík

2-3 Guðmundur Steinarsson 2
Kristján Brooks
1999

KR - Keflavík

3-2 Þórarinn Kristjánsson
Kristján Brooks
1998

KR - Keflavík

0-0