Kristján fundar með Wenger
Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur hefur dvalið hjá Arsenal í London frá sl. mánudegi. Þjálfarinn tók þátt í undirbúningi leiks Arsenal gegn Sparta Prag í Meistaradeildinni sl. miðvikudagskvöld sem Arsenal vann 3-0. Kristján sagði að létt hefði verið yfir Arsene Wenger framkvæmdastjóra Arsenal eftir sigurinn og á fundi þeirra í gær hafi hann verið mjög léttur og líflegur. Kristján og Wenger áttu gott spjall saman um leikmenn Arsenal og þjálfunaraðferðir þar á bæ. Þeir kollegar hittast aftur á undirbúningsæfingu í dag, föstudag en á morgun leikur Arsenal við Sunderland í úrvalsdeildinni. Það er engin spurning að heimsókn Kristjáns til Arsenal bætir töluvert í reynslubankann til viðbótar við ánægjuna og skemmtilegheitin sem hafa verið í herbúðum Arsenal þessa daga sem Kristján hefur dvalið þar. ási
Kristján fagnar sigri á KR í sumar.
(Mynd: Eygló Eyjólfsdóttir)