Kvennaliðið gegn Víkingi Ó. á laugardag
Laugardaginn 15. febrúar er komið að næsta leik kvennaliðsins okkar í Faxaflóamótinu. Þá koma Víkingar frá Ólafsvík í heimsókn en leikurinn verður í Reykjanehsöllinni kl. 18:00. Okkar lið hefur tapað báðum leikjum sínum í riðlinum til þessa, gegn Álftanesi og Grindavík. Víkingur hefur einnig tapað báðum sínum leikjum. Síðasti leikur Keflavíkur í riðlinum verður svo gegn Breiðablik 2 en sá leikur fer fram föstudaginn 21. febrúar kl. 20:30, einnig í Reykjaneshöllinni.