Fréttir

Kvennamót yngri flokka í febrúar
Knattspyrna | 18. desember 2016

Kvennamót yngri flokka í febrúar

Kvennaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur stendur fyrir yngri flokka móti í febrúar.  Leikið verður í 5.-8. flokki kvenna og fer mótið fram í Reykjaneshöll laugardaginn 11. febrúar.
Yngri flokka mót hjá strákum og stelpum hafa verið haldin undanfarin ár á haustin á vegum barna- og unglingaráðs. Þetta er annað árið í röð sem kvennaráð stendur fyrir kvennamóti í febrúar.

Venjulega fyllist fljótt í mótin hjá okkur og því er rétt að bregðast skjótt við með skráningar.
Skráningar félaga sendast á mótsstjóra á netfangið: 
keflavikurmotin@keflavik.is
Mótsstjóri er Gunnar Magnús Jónsson

Hér að neðan eru frekari upplýsingar um mótið.

Hér má nálgast mótaskrána á PDF-formi: /media/5/febkvennamot2017.pdf