Fréttir

Knattspyrna | 5. maí 2011

Landsbankinn og Keflavík styrkja Þroskahjálp

Eins og stuðningsmenn hafa tekið eftir er Landsbankinn orðinn aðalbakhjarl Knattspyrnudeildar Keflavíkur.  Landsbankinn hefur á sama tíma ákveðið að afsala sér auglýsingum framan á búningum meistaraflokka Keflavíkur og boðið félaginu að velja sér gott málefni á búningana í staðinn. Keflavík valdi Þroskahjálp á Suðurnesjum og merki félagsins prýðir því búninga karla- og kvennaliðs Keflavíkur í sumar.  Þetta er gert í takt við nýja stefnu sem Landsbankinn hefur sett sér um stuðning bankans við íþróttafélög undir yfirskriftinni Samfélag í nýjan búning.  Markmiðið er að tengja saman stuðning bankans við íþróttir og mannúðarmál.  Í tengslum við þetta verkefni hefur verið stofnaður áheitasjóður fyrir Þroskahjálp á Suðurnesjum og greiðir bankinn tiltekna upphæð fyrir hvern sigur meistaraflokka karla og kvenna í Keflavík.  Öðrum fyrirtækjum og einstaklingum er frjálst að heita á liðið sitt og leggja þannig góðu málefni lið.

Verkefninu var ýtt úr vör fyrir leik Keflavíkur og Stjörnunnar í Pepsi-deild karla og af því tilefni færði Landsbankinn Þroskahjálp á Suðurnesjum 500.000 kr. styrk.  Það voru Einar Hannesson, útibústjóri Landsbankans, og fyrirliðar meistaraflokka Keflavíkur sem afhentu Sigurði Inga Kristóferssyni, formanni Þroskahjálpar á Suðurnesjum styrkinn. 


Einar Hannesson útibústjóri Landsbankans, Haraldur Freyr Guðmundsson og
Anna Rún Jóhannsdóttir fyrirliðar meistaraflokka Keflavíkur, Þorsteinn Magnússon
formaður Knattspyrnudeildar og Sigurður Ingi Kristófersson,
formaður Þroskahjálpar á Suðurnesjum.
(Mynd: Eygló Eyjólfsdóttir)