Langþráður sigur gegn Fram
Eftir fjóra tapleiki í röð í Pepsi-deildinni vann Keflavík langþráðan sigur þegar Framarar komu í heimsókn á Nettó-völlinn. Það var Arnór Ingvi Traustason sem gerði eina mark leiksins í seinni hálfleik. Eftir leikinn er Keflavík í 8. sæti deildarinnar með 11 stig.
Næsti leikur er heimaleikur gegn Víking mánudaginn 11. júlí kl. 19:15.
-
Leikurinn var 85. leikur Keflavíkur og Fram í efstu deild. Þetta var 32. sigur Keflavíkur, Fram hefur unnið 26 leiki en 27 hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 124-115 fyrir Keflavík.
-
Arnór Ingvi Traustason skoraði sitt fyrsta mark í sumar og annað mark sitt fyrir Keflavík í efstu deild. Það fyrra kom gegn ÍBV í lokaumferðinni í fyrra.
-
Fyrirliðinn Haraldur Freyr Guðmundsson lék sinn 100. deildarleik fyrir Keflavík en sá fyrsti kom árið 1999. Af þessum leikjum eru 82 í efstu deild en 18 komu í B-deildinni. Haraldur hefur skorað átta mörk í leikjunum hundrað.
-
Keflavík hefur aðeins tapað einu sinni í síðustu fimmtán heimaleikjum gegn Fram í efstu deild. Það tap kom reyndar árið 2008...
Fótbolti.net
Ómar Jóhannsson var maður leiksins í góðum sigri Keflavíkur gegn Fram. Hann bjargaði liðinu oft á tíðum með góðum markvörslum. "Já, þetta var langþráður deildarsigur, það voru komnir fjórir tapleikir og það var alveg ljóst fyrir þennan leik að annað hvort vinna þennan leik eða sogast enn dýpra inní botnbaráttuna þannig að við erum ánægðir."
Fyrir leikinn hafði Keflvíkingar tapað fjórum leikjum í röð en Ómar vildi ekki meina að það hafi verið komin nein örvænting í liðið.
"Nei,nei örvænting er dáltið sterkt orð og það var ekki komið, en fjórir tapleikir í röð setjast dáltið á sálina en það var þá bara back to basic, berjast og nú er bara hver leikur stríð, þessi leikur var stríð, við unnum þetta það var erfitt, Framarar eru með gott lið, þeir eru neðstir en þeir eru ekki lélegir."
Fréttablaðið / Vísir
Keflvíkingar unnu langþráðan og mikilvægan sigur, 1-0, gegn botnliði Fram í Pepsi-deild karla suður með sjó í gærkvöldi. Eina mark leiksins gerði Arnór Ingvi Traustason þegar um hálftími var eftir af leiknum.
Framarar voru betri aðilinn í fyrri hálfleiknum en náðu ekki að nýta þau dauðafæri sem liðið fékk. Í síðari hálfleik komu Keflvíkingar grimmir til leiks og skoruðu eftir skelfileg varnarmistök hjá Fram. Útlitið versnar með hverjum leiknum hjá Safamýrarpiltum, sem eru enn langneðstir í deildinni með tvö stig, en Keflvíkingar bættu hag sinn með sigrinum og eru í áttunda sæti með 11 stig. Fram undan er aftur á móti fallbarátta hjá báðum þessum liðum.
Ómar 8, Guðjón Árni 6, Viktor 7, Adam 6, Haraldur 6, Einar Orri 4, Andri Steinn 6, Arnór Ingvi 7 (Jóhann Birnir 5), Bojan Stefán 5, Hilmar Geir 6 (Magnús Sverrir -), Guðmundur 6.
Morgunblaðið / Mbl.is
Willum Þór Þórsson þjálfari Keflvíkinga gerði miklar breytingar á liði sínu og ungir og sprækir leikmenn fengu tækifæri til að láta ljós sitt skína. Þessar breytingar virkuðu vel á leik liðsins þó það hafi tekið þá 45 mínútur að skapa sér marktækifæri. Má segja að þeir þrír ungu leikmenn sem hófu leikinn hafi nýtt sér það til fulls og áttu þeir allir mjög fínan leik. Þeir hristu fram úr erminni ýmsa skemmtilega takta og baráttu sem smitaði út frá sér. Um leið gerðu þeir Willum erfitt fyrir að líta framhjá þeim í næsta leik.
MM: Ómar.
M: Guðjón Árni, Viktor, Arnór Ingvi, Bojan Stefán, Guðmundur.
Víkurfréttir
Hinn 17 ára miðjumaður Keflvíkinga Arnór Ingvi Traustason var sáttur í leikslok eftir 1-0 sigur á Fram í gær þar sem hann skoraði sigurmarkið. Arnór hefur undanfarið verið að glíma við veikindi en hann hefur verið að fá tækifæri í liðinu að undanförnu.
„Ég hef fengið tækifæri undanfarið og reyni að nýta þau sem best, það virðist vera að skila sér,“ sagði Arnór í samtali við Víkurfréttir í gær. Einnig sagði Arnór það hafa verið sætt að sjá boltann í netinu og að Keflvíkingar hafi sýnt karakter með því að klára þennan leik.
Myndasafn Víkurfrétta frá leiknum
Pepsi-deild karla, Nettó-völlurinn, 6. júlí 2011
Keflavík 1 (Arnór Ingvi Traustason 53.)
Fram 0
Keflavík: Ómar Jóhannsson, Guðjón Árni Antoníusson, Viktor Smári Hafsteinsson, Adam Larsson, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Bojan Stefán Ljubicic, Arnór Ingvi Traustason (Jóhann Birnir Guðmundsson 59.), Einar Orri Einarsson, Andri Steinn Birgisson, Hilmar Geir Eiðsson (Magnús Sverrir Þorsteinsson 75.), Guðmundur Steinarsson.
Varamenn: Árni Freyr Ásgeirsson, Goran Jovanovski, Magnús Þór Magnússon, Frans Elvarsson, Sigurbergur Elísson.
Gul spjöld: Einar Orri Einarsson (38.), Andri Steinn Birgisson (60.).
Dómari: Þorvaldur Árnason.
Aðstoðardómarar: Einar Sigurðsson og Eðvarð Eðvarðsson.
Eftirlitsdómari: Jón Sigurjónsson.
Áhorfendur: 642.

Arnór Ingvi átti góðan leik og gerði eina mark leiksins.
(Mynd: Víkurfréttir)