Fréttir

Leik frestað
Knattspyrna | 28. apríl 2017

Leik frestað

Búið er að fresta Suðurnesjaslag Keflavíkur og Víðis í 2. umferð Borgunarbikarsins sem fram átti að fara í kvöld.

Leikurinn hefur verið settur á klukkan 12:00 á morgun, á sama leikstað: Nettóvellinum í Keflavík.

Ástæðan fyrir frestuninni er snjókoma Í Keflavík en eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er komið gott snjólag yfir Nettóvöllinn.