LEIK FRESTAÐ: Keflavík gegn Augnablik í Lengjubikarnum
Uppfært 19. mars kl. 21:46. Leiknum gegn Augnablik hefur verið frestað þar sem Augnablik nær ekki í lið!!
Sunnudaginn 20. mars mæta Augnabliks stúlkur í heimsókn og mæta okkar stúlkum í Lengjubikarnum. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni og verður flautað til leiks kl. 11:00. Þetta er fyrsti leikurinn hjá stelpunum í Lengjubikarnum í ár.
Á mánudaginn verður svo frestaður leikur hjá stúlkunum í Faxaflóamótinu gegn Víking Ó, hefst leikurinn kl. 19:00. Það er því nóg um að vera hjá stúlkunum þessa dagana og reynir vel á leikmannahópinn að spila 2 leiki á 2 dögum.
Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta í Reykjaneshöllina á sunnudaginn og mánudaginn og sjá góða leiki. Stúlkurnar hafa verið að spila vel í vetur og vonandi verður framhald á þeirri frammistöðu.