Fréttir

Leikbönn á leikbönn ofan
Knattspyrna | 22. ágúst 2012

Leikbönn á leikbönn ofan

Það verður frekar þunnskipaður hópur hjá Keflavík þegar liðið mætir Val í Pepsi-deildinni næsta mánudag.  Þrír leikmenn liðsins hafa verið dæmdir í eins leiks bann og geta því ekki tekið þátt í leiknum.  Frans Elvarsson var dæmdur í bann vegna brottvísunar gegn ÍBV, Denis Selimovic vegna fjögurra gulra spjalda og Einar Orri Einarsson vegna sjö gulra spjalda í leikjum sumarsins.  Reyndar vill þannig til að þetta eru einmitt þeir þrír leikmenn sem skipuðu miðjuna hjá liðinu í síðasta leik.  Þar verða því breytingar í næsta leik og aðrir leikmenn fá tækifæri til að sýna sig og sanna.