Fréttir

Knattspyrna | 10. júní 2010

Leikið heima í Futsal

Frá UEFA bárust þar fréttir í dag að leikið verður í undankeppni Evrópukeppninnar í Futsal hér á landi en einn riðill verður í umsjón Keflvíkinga.  Keflvíkingar sóttu um að leika riðil sinn hér á landi og samþykkti UEFA það í dag.

Keflavík, sem varð Íslandsmeistari í Futsal í janúar, er þriðja íslenska félagið sem tekur þátt í Futsal Cup en það fyrsta sem leikur á heimavelli.  Riðillinn verður leikinn á tímabilinu 14.-22. ágúst en dregið verður í riðlana 6. júlí næstkomandi.

Frétt af vef KSÍ.

 


Íslandsmeistaralið Keflavíkur í innanhússknattspyrnu.
(Mynd: Jón Örvar)